Haustönnin er frá 6. september og fram til 16. desember og vorönnin er frá 6. janúar og fram til 19. maí og kostar hver önn kr. 14.000,-. Systkinaafsláttur er kr. 2.000,- á mann. Æft er í íþróttahúsinu við Víðistaðaskóla. Félagsgjald fyrir ár hvert er 2.000,- kr., Félagsgjald skal greiðast í janúar. Félagsgjald fer til kaupa á skylmingaútbúnaði, sérstaklega fyrir unga skylmingamenn og standa straum af kostnaði við mót.


Æfingar eru tvisvar sinnum í viku, á þriðjudögum og föstudögum fyrir yngstu hópana. Fyrir elsta hópinn bætast við æfingar á mánudögum og miðvikudögum

Framkvæmdir í Kaplakrika

Eins og flestir iðkendur, foreldrar og almennir FH-ingar hafa tekið eftir er nóg um að vera á Kaplakrikasvæðinu þessa dagana. Áður en langt um líður komum við til með að eiga eitt allra glæsilegasta íþróttasvæði landsins. En á meðan framkvæmdum stendur þarf að sýna þolinmæði og fara varlega um svæðið. Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar um framkvæmdina og aðgengi á svæðinu.

Myndasafn

Könnun

Ætlar þú að mæta á æfingar hjá Hlaupahóp FH