Muggur "Traustir í meðbyr - Tryggir í mótbyr"


Heimasíða Muggs: www.123.is/muggur


Hvað er Muggur?
Muggur er stuðningsmannafélag handknattleiksdeildar FH og er öllum stuðningmönnum FH heimill aðgangur. Muggur var stofnaður haustið 1997 og eru félagar sem hafa skráð sig í félagið tæplega 230. Stuðningsfélagið Muggur stendur fyrir utan stjórn handknattleiksdeildar FH. Í stjórn félagsins sitja 5 stjórnarmenn og 2 varamenn sem eru virkir í stjórnarstarfinu.

Markmið félagsins
Markmið félagsins er að vera stuðningsaðili við meistaraflokka FH ( karla og kvenna ) Hver félagi greiðir ákveðið mánaðargjald til félagsins (1.400 kr á mánuði ) Fjármagn þetta er notað til að styðja við bakið á meistaraflokkum FH í handknattleik. Einnig gefur félagið út blaðið Mugg sem segir frá starfsemi félagsins og handknattieisdeildar FH. Blaðinu er dreift í allan bæinn 3-5 sinnum á ári.

Hvers vegna heitir félagið Muggur?
Muggur ( Guðmundur Jónsson ) var einn dyggasti stuðningmaður og vinur handknattleikdeildar FH um áratugaskeið. Muggur fylgdist jafnt með æfingum keppnismanna sem og með leikjum þeirra. Muggur var ávallt innilega sár ef illa gekk en óheyrilega glaður ef sigur vannst. Samband handknattleiksmanna við þennan FH-ing nr. 13 var innilegt og báðum aðilum til sóma og ánægju. Á 50 ára afmæli félagsins færði Muggur félaginu bikar að gjöf og skyldi hann veita þeim leikmanni sem skaraði framúr á æfingum og leikjum liðsins. Það er með sérstöku stolti að við FH-ingar nefnum stuðningsfélagið okkar Mugg, til heiðurs þeim ágæta manni. Muggur var fæddur 1935 og hann lést árið 1988.

Hvað færð þú fyrir að vera í Mugg ?
  • Frítt fyrir fjölskylduna inn á alla heimaleiki meistaraflokka kk og kvk (ekki þó á tekjuskipta leíki svo sem bikarleiki og oddaleiki í úrslitakeppni)
  • Frítt fyrir korthafa og maka á veglega matarveislu sem haldin er á hverju hausti og ýmsar aðrar uppákomur yfir veturinn.
  • Nafn skuldlausra korthafa lendir í potti einu sinni á ári sem úr er dregin utanlandsferð
Þetta allt fyrir aðeins 1.750 krónur hvern mánuð.

Framkvæmdir í Kaplakrika

Eins og flestir iðkendur, foreldrar og almennir FH-ingar hafa tekið eftir er nóg um að vera á Kaplakrikasvæðinu þessa dagana. Áður en langt um líður komum við til með að eiga eitt allra glæsilegasta íþróttasvæði landsins. En á meðan framkvæmdum stendur þarf að sýna þolinmæði og fara varlega um svæðið. Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar um framkvæmdina og aðgengi á svæðinu.

Myndasafn

Könnun

Ætlar þú að mæta á æfingar hjá Hlaupahóp FH