24.8.2010
Sigurður Haraldsson

Æfingar í frjálsum

Æfingar hefjast næsta mánudag (30. ágúst), nema hjá piltum og telpum, þær hefjast  þriðjudaginn (31. ágúst).

Æfingartímar 2010-2011 eru eftirfarandi:
Pollar og pæjur (2003-2005) 
 
Mánudagar 17-18 Kaplakriki
Fimmtudagar 16-17 Kaplakriki
Þjálfari Októvía Edda Gunnarsdóttir
Októvía veitir upplýsingar í síma 8670805, netfang oktovia@hotmail.com

Hnokkar og hnátur (2001-2002)
Mánudagar 18-19 Kaplakriki
Miðvikudagar 16-17 Kaplakriki
Föstudagar 16-17 Setbergsskóli
Þjálfari Októvía Edda Gunnarsdóttir
Októvía veitir upplýsingar í síma 8670805, netfang oktovia@hotmail.com

Strákar og stelpur (1999-2000)
Mánudagar 19-20 Kaplakriki
Þriðjudagar 17-18 Kaplakriki
Miðvikudagar 18-19 Kaplakriki
Sunnudagarr 12-13 Kaplakriki
Þjálfari Iðunn Arnardóttir ásamt aðstoðarþjálfurum.
Iðunn veitir upplýsingar í síma 6932478, netfang idunn89@gmail.com

Piltar og telpur (1997-1998)
Mánudagar 16:30-18 Íþróttahús Strandgötu
Þriðjudagar 1930-2030 Kaplakriki
Miðvikudagar 17-18 Kaplakriki
Föstudagar 17-18 Setbergsskóli
Sunnudagarr 11-12 Kaplakriki
Þjálfari Silja Úlfarsdóttir ásamt aðstoðarþjálfurum
Silja veitir upplýsingar í síma 6983223, netfang siljaulf@gmail.com
11.8.2010
Sigurður Haraldsson

Bikarfundur í frjálsíþróttum

Minni á fundinn í kvöld kl. 19:10 í Kaplakrika.
Farið yfir Bikarliðið sem keppir í Bikarnum á Sauðárkróki, föstudag og laugardag
Ferðafyrirkomulag og gisting
Búningar, utanyfirgallar og keppnisgallar kvenna
bankanr. 327-26-9031 kt. 681189-1229
FH sér um kringlukast á mótinu
Bikarveisla
o.fl.

kv
Sigurður
8.8.2010
Sigurður Haraldsson

Bergur Ingi bætti gamalt Íslandsmet í lóðkasti

Elite Throwing, alþjóðleg kastmót, fóru fram á frjálsíþróttavelli FH í Kaplakrika föstudag og laugardag.
Á laugardeginum setti Bergur Ingi Pétursson úr FH Íslandsmet í lóðkasti. Bergur Ingi kastaði 21,49 metra og bætti 37 ára gamalt met Erlends Valdimarssonar úr ÍR um 85 sentímetra. Glæsilegur árangur hjá Bergi sem átti að keppa í sleggjukasti á EM í Barcelona fyrir skömmu en varð að draga sig úr keppni vegna meiðsla.
Norskir kastarar voru á meðal keppenda í Hafnarfirðinum á mótinu föstudag og laugardag og náðu góðum árangri. 
Á mótunum öttu fremstu sleggjukastskonur Íslands kappi við Monu Holm sem vann þó öruggan sigur með 67,53 metra kasti sem er vallarmet.
Grete Etholm frá Noregi vann kringlukastið á báðum mótunum og kastaði lengst 55,58 metra og Ragnheiður Anna Þórsdóttir úr FH kastaði 49,70 metra.
Óðinn Björn Þorsteinsson úr FH varpaði kúlu 17,94 metra og vannn kúluvarpið á föstudeginum, Ásgeir Bjarnason FH vann kúluvarpið á laugardeginum og varpaði kúlunni 15,98 metra.Þrjú aldursflokkamet voru sett á mótinu  Jófríður Skaftadóttir úr USK setti stelpnamet í kringlukasti með því að kasta 28,83 metra á föstudeginum og Hilmar Örn Jónsson úr ÍR bætti piltamet sitt á báðum mótunum með 3ja kg í sleggjukasti, hann kastaði lengst 57,58 metra.

31.7.2010
Sigurður Haraldsson

Frjálsíþrótta- og heilsunámskeið á vegum frjálsíþróttadeildar FH.

Þriðja námskeiðið í sumar hefst 3. ágúst

Í sumar hafa verið haldin tvö frjálsíþrótta- og heilsunámskeið á vegum frjálsíþróttadeildar FH og þriðja námskeið hefst 3. ágúst.

Námskeiðið er haldið á frjálsíþróttavelli félagsins í Kaplakrika.

Námskeiðin eru fyrir 6-11 ára (fædd 1999-2005)
Tími: Mánudaga-Föstudaga kl. 13:00-16:00.  Boðið er upp á gæslu kl. 16:00-17:00.

Á námskeiðunum verður farið almennt yfir mataræði, hollustu og hreyfingu. Við kynnum ólíkar greinar frjálsíþrótta og förum í skemmtilega leiki. Í lok hvers námskeiðs verður uppskeruhátíð og allir fá viðurkenningarskjal. Á hverju námskeiði verður haldið frjálsíþróttamót þar sem börnin fá að spreyta sig ásamt því að boðið verður upp á Gaflarann 7. – 8. ágúst. Börnin eiga að koma með nesti en lögð er áhersla á að þau komi með hollan mat svo sem ávexti, grænmeti, mjólkurmat (skyr) og holla drykki.
Námskeiðið verður dagana 3. – 13. ágúst

Skráning fer fram á heimasíðu félagsins http://www.fh.is/  . Einnig er hægt að skrá börnin á staðnum í upphafi hvers námskeiðs.
Nánari upplýsingar um námskeiðin eru á www.fh.is og hjá Þóreyju Eddu Elísdóttur sem hefur yfirumsjón með námskeiðinu. 
Þórey Edda Elísdóttir Sími: 895 2705. Netfang: the@mi.is


Hægt er að skrá börnin hér á heimasíðu félagsins
28.7.2010
Sigurður Haraldsson

Björgvin Víkingsson keppir í dag í 400 m grindahlaupi á Evrópumeistaramótinu í Barcelona

Tveir FHingar keppa á EM í Barcelona það eru þeir Björgvin Víkingsson í 400 m grhl. og Óðinn Björn Þorsteinsson í kúluvarpi. Bergur Ingi Pétursson náði einnig lágmarki í sleggjukasti, en verður ekki á meðal keppenda á þessu ári.Björgvin Víkingsson keppir á sínu fyrsta stórmóti í dag og hleypur hann í þriðja riðli uppúr klukkan 11. Björgvin á Íslandsmetið í greininni og hefur verið að nálgast sinn besta tíma á síðustu vikum. Óskum við Björgvini góðs gengis í hlaupinu. Riðill Björgvins er eftirfarandi:
Lane   Athlete Nation YoB    PB
SB
1   VIKINGSSON, Björgvin  ISL 83 51.17
51.77
2   DUERINCK, Nils  BEL 84 50.22
50.22
3   KECHI, Heni  FRA 80 49.65
49.65
4   CABELLO, Diego  ESP 88 51.03
51.03
5   PAPADÓPOULOS, Spirídon  GRE 87 50.26
50.99
6   MELNYKOV, Stanislav  UKR 87 49.34
49.34
7   FERREIRA, João  POR 86 50.21
50.21
8   NIRK, Aarne  EST 87 51.05
51.82
 
4.7.2010
Sigurður Haraldsson

Björgvin Víkingsson náði í dag lágmarki á EM í Barcelona í 400 m grindahlaupi

Björgvin Víkingsson hljóp á 51,77 sek  á sterku móti í La Chaux-de-Fonds  í  Sviss í 400 m grindahlaupi. Glæsilegur árangur hjá Björgvini og er hann kominn í hóp með 6 Íslendingum sem hafa náð lágmarki á Evrópumeistaramótið. Verður hann m.a. í góðum félagsskap FHinganna Bergs Inga Péturssonar sleggjukastara og Óðins Björn Þorsteinssonar kúluvarpara , sem þegar hafa náð lágmarki á EM.
30.6.2010
jr

Skráning í Íbúagátt 1-15. júlí

Foreldrar og forráðamenn athugið.

Til þess að fá iðkendagjöld barna niðurgreidd að hluta af Hafnarfjarðarbæ þurfa foreldrar að staðfesta að barnið æfi fótbolta, handbolta, frjálsar og/eða skylmingar hjá FH í íbúagátt Hafnarfjarðar á vef bæjarins www.hafnarfjordur.is. Íbúagáttin er opin fyrir slíkar staðfestingar frá 1. júlí til 15. júlí og er því mikilvægt að ganga frá skráningu barns hið fyrsta. Vinsamlegast látið orðið berast til allra foreldra svo að allir séu með þessa hluti á hreinu. Fimleikafélagið er stolt af sterku barna- og unglingastarfi sínu og þakkar öllum FH-ingum fyrir að taka þátt í félagsstarfinu.

Áfram FH.


8.6.2010
Sigurður Haraldsson

Óðinn Björn Þorsteinsson bætti sinn besta árangur í kúluvarpi og varpaði kúlunni 19,37 m

Óðinn Björn sigraði í kúluvarpi á stigamóti Sænska Frjálsíþróttasambandsins í Eskilstuna í kvöld og varpaði kúlunni 19,37 m. Óðinn var öruggur í sínum köstum og nálgast 20 metrana.  Þessi árangur Óðins er bæting á hans besta áranguri utanhúss um 13, cm, en hann kastaði 19,50 m innanhúss í vetur. Hans besti árangur fram til þessa utanhúss var 19,24 m frá 2007.
Óðinn Björn er sem fyrr með 4. besta árangur frá upphafi í kúluvarpi. Föðurbróðir hans Óskar Jakobsson er næstur á undan honum með 20,61 m.
4.6.2010
Sigurður Haraldsson

Júní mót FH í frjálsum fór fram í kvöld.

Ragnheiður Anna Þórsdóttir bætti á mótinu 31 árs gamalt ungkvennamet Guðrúnar Ingólfsdóttur í kringlukasti þegar hún kastaði kringlunni 51,06 m, eldra metið var 50,88 m. Þá bætti Hilmar Örn Jónsson ÍR (Sigurjónssonar), piltametið í sleggjukasti þegar hann kastaði 55,95 m og bætti hann piltametið um 8 og hálfan metra. Glæsilegur árangur hjá þeim báðum. Á mótinu þurfti að fresta öllum hlaupa- og stökkgreinum vegna öskufalls - en ákveðið var að halda kastgreinarnar, önnur úrslt eru á mótaforriti Frjálsíþróttasambandsins.
27.5.2010
Silja Úlfars

Óðinn yfir 19 metrana

Coca Cola mót FH var haldið 24. maí og þar kastaði Óðinn Björn Þorsteinsson 19.04 metra í kúluvarpi. Þetta er flottur árangur hjá þessum stóra og nautsterka manni ;)

Óðinn er búinn að ná lágmarki á Evrópumeistaramótið sem er haldið um mánaðamótin júlí - ágúst í Barcelona. Óðinn er í fullum undirbúningi fyrir mótið og byrjar tímabilið vel.

Framkvæmdir í Kaplakrika

Eins og flestir iðkendur, foreldrar og almennir FH-ingar hafa tekið eftir er nóg um að vera á Kaplakrikasvæðinu þessa dagana. Áður en langt um líður komum við til með að eiga eitt allra glæsilegasta íþróttasvæði landsins. En á meðan framkvæmdum stendur þarf að sýna þolinmæði og fara varlega um svæðið. Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar um framkvæmdina og aðgengi á svæðinu.

Myndasafn

Könnun

Ætlar þú að mæta á æfingar hjá Hlaupahóp FH