Reglur, meginmarkmið og skilyrði fyrir niðurgreiðslum Hafnarfjarðarbæjar hjá iðkendum 16 ára og yngri í íþrótta- og tómstundafélögum frá 1. janúar 2010

 

 

  • Markmið niðurgreiðslna er að gera börnum með lögheimili í Hafnarfirði kleift að taka þátt í íþrótta- og tómstundastarfi óháð efnahag fjölskyldna og að efla íþrótta- og annað forvarnastarf í Hafnarfirði. Einnig á niðurgreiðslan að vinna gegn óæskilegu brottfall í eldri aldurshópum iðkenda.
  • Meginskilyrði fyrir endurgreiðslu til félaga verður að starfsemin sé á forsendum uppeldislegra gilda og forvarna í víðustum skilningi. Starfsemin fari fram undir leiðsögn hæfra starfsmanna, þannig að fagmennska sé viðhöfð við kennslu og þjálfun barna og unglinga.
  • Félag/deild fær greiddar fyrir hvern iðkanda á mánuði til lækkunar á þátttökugjaldi eins og hér segir kr. 1.000 fyrir 6 ára og yngri, kr. 2.000 fyrir 7 ára til 12 ára og kr. 3.000 fyrir 13 ára til 16 ára og miðað skal við fæðingarár
  • Niðurgreiðslur ná einungis til félaga með skipulagða kennslu/þjálfun í að minnsta kosti 10 vikur á önn og að lágmarki eina æfingu í viku.
  • Ef þátttökugjald er hærra en sem nemur niðurgreiðslu Hafnarfjarðarbæjar innheimtir félag/deild mismuninn hjá forráðamönnum.
  • Niðurgreiðsla bæjarins skal ekki nema hærri fjárhæð en ákvörðuðu æfingagjaldi.
  • Niðurgreitt verður aðeins hjá félögum utan Hafnarfjarðar sem bjóða upp á starfsemi sem ekki er í boði hjá félögum í Hafnarfirði.
  • Árinu er skipt upp í þrjár annir, janúar – maí, júní – ágúst og september – desember.
  •  Framkvæmd niðurgreiðslunnar er þannig að forráðamenn verða að fara inn á vef Hafnarfjarðarbæjar í íbúagáttina og staðfesta þátttöku iðkandans hjá viðkomandi félagi/deild rafrænt. Íbúagáttin er opin ákveðinn tíma á hverju starfstímabili fyrir janúar – maí er opnunartíminn 1. – 15. febrúar, júní – ágúst er opnunartíminn 1. – 15. júlí og september – desember er opnunartíminn 1. – 15. október. Eingöngu er hægt að staðfesta þátttökuna á opnunartíma íbúagáttarinnar. Þegar forráðamaður staðfestir þátttöku barns fær viðkomandi félag/deild sendan tölvupóst. Þegar íbúagáttinni hefur verið lokað á hverju tímabili tekur Hafnarfjarðarbær saman lista með fjölda þátttökustaðfestinga forráðamanna og sendir til félaga/deilda og greiðir félögum/deildum niðurgreiðslustyrki útfrá heildarlista hvers tímabils. Í kvittun til þátttakenda um námskeiðskostnað skal félag geta um hlut bæjarfélagsins í greiðslu vegna námskeiðsgjaldsins.
  • Þjónustuverið s. 5855500 veitir frekari upplýsingar og aðstoð varðandi skráningar í íbúagáttina.
  • Samþykkt í Íþrótta- og tómstundanefnd Hafnarfjarðar 11.11.2009 og staðfest í Fjölskylduráði 18.11. 2009

Framkvæmdir í Kaplakrika

Eins og flestir iðkendur, foreldrar og almennir FH-ingar hafa tekið eftir er nóg um að vera á Kaplakrikasvæðinu þessa dagana. Áður en langt um líður komum við til með að eiga eitt allra glæsilegasta íþróttasvæði landsins. En á meðan framkvæmdum stendur þarf að sýna þolinmæði og fara varlega um svæðið. Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar um framkvæmdina og aðgengi á svæðinu.

Myndasafn

Könnun

Ætlar þú að mæta á æfingar hjá Hlaupahóp FH