Leikmanna- og foreldrasamningar

Sú ákvörðun hefur verið tekin af Barna- og unglingaráði knattspyrnudeildar FH að hætta með greiðsluseðla við innheimtu á æfingagjöldum.  Þess í stað hefur nú verið hleypt af stokkunum leikmanna- og foreldrasamningi.

Samningurinn er þannig upp byggður að foreldrar fylla út allar upplýsingar um sig og leikmanninn ásamt því að gefa upp kreditkortanúmer eða heimild til beingreiðslu í banka. Samningurinn inniheldur nokkur atriði varðandi skyldur leikmanns, foreldra og félagsins sem eru almenns eðlis varðandi samstarf leikmanns, félags og foreldra.

Samningurinn gildir til 15. október ár hvert þegar tímabili líkur og endurnýjast með staðfestingu foreldris/forráðamanns við upphaf hvers tímabils.

Leikmenn munu svo fá leikmannakort (félagskort FH) sem mun í framtíðinni nýtast okkur við samninga um afslætti til handa leikmönnum FH.  

Samningeyðublöðin fást hjá þjálfurum allra flokka og eiga að skilast til þjálfara þess flokks sem leikmaðurinn tilheyrir.  Einnig er hægt að opna og prenta samninginn neðst á síðunni og skila til þjálfara.

Leikmanna- og foreldrasamningur

Framkvæmdir í Kaplakrika

Eins og flestir iðkendur, foreldrar og almennir FH-ingar hafa tekið eftir er nóg um að vera á Kaplakrikasvæðinu þessa dagana. Áður en langt um líður komum við til með að eiga eitt allra glæsilegasta íþróttasvæði landsins. En á meðan framkvæmdum stendur þarf að sýna þolinmæði og fara varlega um svæðið. Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar um framkvæmdina og aðgengi á svæðinu.

Myndasafn

Könnun

Ætlar þú að mæta á æfingar hjá Hlaupahóp FH