ATHUGIÐ!
Sú breyting hefur orðið á fyrirkomulagi niðurgreiðslunnar frá Hafnarfjarðarbæ að staðfesta þarf þátttöku viðkomandi barns í Íbúagáttinni á hafnarfjordur.is.
Með staðfestingu í gegnum Íbúagáttina samþykkir forráðamaður barns að Hafnarfjarðarbær greiði viðkomandi félagi niðurgreiðsluna vegna þátttöku barnsins í námskeiði á vegum félagsins.
Nánari upplýsingar um íþrótta- og tómstundastyrkina eru í Íbúagáttinni en einnig hjá Þjónustuveri Hafnarfjarðarbæjar í síma 585 5500 og hjá Íþróttabandalagi Hafnarfjarðar í síma 555 2300.
Athugið að greiðsluseðlar verða ekki sendir út framvegis, heldur verða foreldrar að fylla út Leikmanna- og foreldrasamning þar sem gefið er upp kortanúmer eða bankaupplýsingar fyrir beingreiðslur.
Hægt er sækja samning og prenta út hér. Útfylltum samningum má skila til þjálfara eða í pósthólf Unglingaráðs Knattspyrnudeildar FH í Kaplakrika.
Frekari upplýsingar er hægt að fá hjá Unni Vilhjálmsdóttur í síma 8203246 eða senda fyrirspurn á unnur@fh.is
Framkvæmd æfingagjalda FH knattspyrnudeild 2009-2010.
Æfingagjald á ársgrundvelli er kr. 50.000,- fyrir þá iðkendur sem eru í 3-4. flokki karla og kvenna og greiðir foreldri kr. 14.000,- til félagsins, sem er innheimt skv. leikmanna- og foreldrasamningi,
félagið sækir framlagið sem uppá vantar til bæjarins, kr. 36.000,-.
Æfingagjald á ársgrundvelli er kr. 40.000,- fyrir þá iðkendur sem eru í 5-6. flokki karla og kvenna og greiðir foreldri kr. 16.000,- til félagsins, sem er innheimt skv. leikmanna- og foreldrasamningi,
félagið sækir framlagið sem uppá vantar til bæjarins, kr. 24.000,-.
Æfingagjald á ársgrundvelli er kr. 36.000,- fyrir þá iðkendur sem eru í 7. flokki karla og kvenna og greiðir foreldri kr. 12.000,- til félagsins, sem er innheimt skv. leikmanna- og foreldrasamningi,
félagið sækir framlagið sem uppá vantar til bæjarins, kr. 24.000,-.
Æfingagjald á ársgrundvelli er kr. 28.000,- fyrir þá iðkendur sem eru í 8. flokki karla og kvenna og greiðir foreldri kr. 16.000,- til félagsins, sem er innheimt skv. leikmanna- og foreldrasamningi,
félagið sækir framlagið sem uppá vantar til bæjarins, kr. 12.000,-.
ATH: Framlag bæjarins er háð staðfestingu forráðamanns í Íbúagátt á hafnarfjordur.is og án hennar þarf að greiða fullt æfingagjald.
Þeir sem hafa athugasemdir við æfingagjöld eða greiðsluseðla eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Unni Vilhjálmsdóttur (unnur@fh.is) og láta kennitölu greiðanda og nafn barns fylgja tölvupóstinum.
* Gjaldskrá þessi er birt með fyrirvara um óbreytt fyrirkomula á mótframlagi Hafnarfjarðarbæjar til íþróttafélaga skv. 2. gr. að ofan.
Úr samningi Hafnarfjarðarbæjar við Íþróttafélög bæjarins (2.gr).
Þegar starfstímabilið er hafið, útbýr viðkomandi íþróttafélag og eða deild lista yfir þátttakendur. Listinn skal innihalda nafn viðkomandi íþróttafélags og þjálfara viðkomandi hóps, nafn, kennitölu og heimilisfang þátttakanda og nafn og kennitölu foreldra eða forráðamanns, hvenær iðkun hófst og áætluð lok tímabils. Íþróttafélag sendir Íþróttafulltrúa listann á viðkomandi önn, en miðað er við haustönn september/desember., vorönn janúar/maí og sumarönn júní /ágúst og í kjölfarið greiðir Hafnarfjarðarbær umsamda upphæð. fyrir hvern mánuð eins og síðar greinir. Skila skal listum í síðasta lagi í lok hverrar annar með undirritun formanns og gjaldkera viðkomandi íþróttafélags sem staðfesting um að viðkomandi listi sé réttur. Listanum skal skila á rafrænu formi með þeim hætti sem íþróttafulltrúi ákvarðar, þannig að hægt sé að byggja upp gagnagrunn um þátttakendur í íþrótta- og tómstundastarfi í bæjarfélaginu. Jafnframt verði stefnt að því að niðurgreiðslur æfingagjalda verði afgreiddar með rafrænum hætti og tengdar íbúagátt Hafnarfjarðarbæjar. Í kvittun til iðkanda um æfingakostnað skal íþróttafélag geta um hlut bæjarfélagsins í greiðslu vegna æfingagjaldsins.
Félag/deild fær greiddar fyrir hvern iðkanda á mánuði til lækkunar á þátttökugjaldi eins og hér segir: kr. 1.000 fyrir 6 ára og yngri, kr. 2.000 fyrir 7 ára til 12 ára og kr. 3.000 fyrir 13 ára til 16 ára og miðað skal við fæðingarár. Til viðbótar þeirri upphæð, greiðir Hafnarfjarðarbær sem nemur 10% af niðurgreiðsluupphæðinni til reksturs og eflingar innra starfs viðkomandi félags/deildar.
Niðurgreiðslur ná einungis til félaga með skipulagða kennslu/þjálfun í að minnsta kosti 10 vikur á önn og að lágmarki eina æfingu í viku.
f/h barna-og unglingaráðs FH
Gísli Björgvinsson