Vona að flestir Hafnfirðingar sjái sig fært um að mæta

7.2.2010 Anton Ingi Leifsson

Bronsstrákurinn og stórskyttan, Ólafur Guðmundsson, var að vanda glaður og bjartsýnn á leik FH-liðsins gegn Haukum í dag í N1-deild karla. Liðin mætast í kvöld, en leikurinn hefst klukkan 19.30.

Sæll Ólafur, fyrst af öllu: til hamingju með frábæran sigur gegn Akureyringum. Er þetta fullkomin byrjun á nýju ári, að þínu mati?
Ólafur: "Takk fyrir það, þetta er góð byrjun en kanski ekki alveg fullkomin, við spiluðum vel en samt sem áður nokkrir hluti sem við þurfum ennþá að lagfæra fyrir komandi leiki.  Alltaf gott að byrja á sigri og voru þetta 2 mikilvæg stig þar sem Akureyri voru jafnir okkur í töflunni."

Nú er næsti leikur liðsins gegn erkifjöndum okkar í úthverfinu, sjálfum Haukum. Hvernig leggst sá leikur í þig?
Ólafur: "Sá leikur leggst bara mjög vel í mig og okkur alla, þetta hafa alltaf verið spennandi leikir og ég á ekki von á öðru núna á mánudaginn.  Við höfum verið að bæta okkur eftir því sem líður á mótið og mætum fullir sjálfstrausti í þennan leik."

Eru þetta ekki þeir leikir sem að þú, sem uppalinn FH-ingur, hlakkar mest til?
Ólafur: "Jú þessir leikir eru alltaf aðeins öðruvísi því það er ekki bara verið að keppa um 2 stig heldur líka bæjarstoltið og held ég að það skipti jafnvel meira máli heldur en stigin 2 sem eru undir."

Hvað telur þú að sé hættulegast við leik Hauka? Hvað komið þið til með að gera til þess að brjóta það niður?
Ólafur: "Það eru nokkrir hlutir sem við höfum verið að fara yfir varðandi leik haukana sem við teljum okkur hafa lausnir á, en ég held að það þurfi bara að koma í ljós í leiknum sjálfum hvort okkur hafi tekist að stoppa þessa hluti.  Annars er þetta meira undir okkur komið hvernig við ætlum að mæta til leiks og spila frekar en að pæla of mikið í þeirra leik."

Hvað er það helsta sem FH-ingar geta nýtt sér gegn Haukunum (sóknar eða varnarlega..)?
Ólafur: "Ætli það sé ekki gamla klisjan sem alltaf er hægt að telja upp fyrir leik og segja að vörn og markvarsla séu stórir þættir í að ná fram sigri, en samt sem áður eru ákveðnir hlutir í sóknarleiknum sem þurfa að ganga upp."

Nú er búist við gríðarlegum fjölda á þennan leik, eins og á flest alla leiki þessara liða og þar verður vafalaust heitt í kolunum. Finnur þú fyrir meiri vilja og ákefð inni á vellinum í þessum leikjum? Skilar ástríða áhorfenda sér til leikmanna liðanna?
Ólafur: "Eins og ég sagði áðan þá er mjög mikið undir í svona leikjum og ósjálfrátt verður meiri harka og átök inná vellinum. Þá getur stuðningur áhorfenda skipt gríðalega miklu máli, því leikmenn finnum að stuðningurinn og trúin sem áhorfendur sýna okkur er oft þetta extra sem við þurfum til að vinna leiki eins og þennan."

Einhver skilaboð til stuðningsmanna?
Ólafur: "Já ég vona bara að sem flestir Hafnfirðingar sjái sér fært um að mæta og hvetja sitt lið og í rauninni bara alla áhugamenn um handbolta því þetta eru skemmtilegustu leikir ársins."

Framkvæmdir í Kaplakrika

Eins og flestir iðkendur, foreldrar og almennir FH-ingar hafa tekið eftir er nóg um að vera á Kaplakrikasvæðinu þessa dagana. Áður en langt um líður komum við til með að eiga eitt allra glæsilegasta íþróttasvæði landsins. En á meðan framkvæmdum stendur þarf að sýna þolinmæði og fara varlega um svæðið. Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar um framkvæmdina og aðgengi á svæðinu.

Myndasafn

Könnun

Ætlar þú að mæta á æfingar hjá Hlaupahóp FH