I. Heiti og aðsetur

1. gr.

Félagið heitir Fimleikafélag Hafnarfjarðar (FH).

2. gr.

Heimili og varnarþing félagsins er í Hafnarfirði.


II. Markmið.

3. gr.

Markmið félagsins eru iðkun íþrótta, efling íþrótta-, æskulýðs- og félagsmála og að stuðla að auknum áhuga almennings á íþróttum.

4. gr.

Markmiðum sínum hyggst félagið ná með því að:

a) Halda uppi íþróttakennslu fyrir félaga sína.

b) Standa fyrir og taka þátt í íþróttamótum.

c) Halda uppi fræðslu um íþróttamál á hvern þann hátt, sem kostur er á hverjum tíma.

d) Standa fyrir að byggð verði fullkomin íþrótta- og félagsaðstaða.

e) Halda uppi öflugu og þroskandi félagslífi meðal félaga sinna.

f) Standa fyrir góðu og vönduðu æskulýðsstarfi þar sem áhersla er lögð á heilbrigt líf og vinna gegn vímuefnanotkun.

g) Leggja áherslu á fagleg og góð vinnubrögð í fræðslu og uppeldisstarfi sínu.


III. Félagar.

5. gr.

Félagi getur hver sá orðið sem greiðir félags- eða iðkendagjald. Einnig getur hver sá er þess æskir gerst félagi án aðildar að deild. Iðkendur og styrktarfélagar deilda eru sjálfkrafa skráðir félagsmenn. Hverjum félagsmanni er heimil þátttaka sem iðkandi í fleiri en einni íþróttadeild.



IV. Stjórnun og skipulag félagsins.

6. gr.

Með stjórn félagsins fara:

1. Aðalfundur félagsins.
2. Aðalstjórn félagsins.
Æðsti stjórnandi félagsins milli aðalfunda er aðalstjórn þess.


V. Aðalfundur félagsins.

7. gr.

Aðalfundur félagsins hefur æðsta vald og ákvörðunarrétt í öllum málum þess. Skal hann haldinn eigi síðar en 1. apríl ár hvert. Auglýsa skal aðalfundinn opinberlega með viku fyrirvara.
Aðalfundurinn telst lögmætur, ef löglega er til hans boðað.


VI. Dagskrá aðalfundar.

8. gr.

Dagskrá aðalfundar félagsins skal vera sem hér segir:

1. Formaður félagsins setur fundinn.

2. a) Kosinn fundarstjóri.
b) Kosinn fundarritari.

3. Kosin kjörbréfanefnd ( 3 manna ).

4. Fundargerð síðasta aðalfundar lögð fram til samþykktar.

5. Lagt fram álit kjörbréfanefndar.

6. Formaður félagsins leggur fram skýrslu aðalstjórnar um starfsemi og framkvæmdir á liðnu starfsári.

7. a) Gjaldkeri félagsins leggur fram og útskýrir endurskoðaða reikninga aðalstjórnar
og félagsins í heild fyrir liðið starfsár, til samþykktar.
b) Lögð fram fjárhagsáætlun fyrir næsta starfsár.

8. Lagðir fram reikningar fastra nefnda til samþykktar.

9. Lagabreytingar sbr. 10 gr. og 32. gr.

10. a) Kosinn formaður.
b) Kosinn heiðursformaður, þegar það á við.

11. a) Kosnir 2 menn úr fráfarandi stjórn.
b) Kosnir 2 menn aðrir í stjórn. (óbundin kosning).

12. Kosning 3 manna varastjórnar.

13. Kosning 2 endurskoðenda og 1 til vara.

14. Önnur mál.

15. Fundarslit.


VII. Aukaaðalfundir félagsins.

9. gr.

Aukaaðalfund félagsins má halda, ef aðalstjórn álítur þess þörf eða ef ¼ atkvæðisbærra fulltrúa á aðalfundi félagsins óskar eftir því, enda tilkynni þeir um leið fundarefni það, er ræða á.
Aukaaðalfundur er lögmætur, sé til hans boðað skv. 7. gr. þessara laga. Aukaaðalfundur hefur sama vald og aðalfundur. Lagabreytingar og stjórnarkosning skal þó ekki fara fram á aukaaðalfundi.


VIII. Atkvæðagreiðslur, kjörgengi og félagsgjöld.

10. gr.

Á aðalfundi félagsins ræður einfaldur meirihluti úrslitum mála, nema þegar um er að ræða tillögur til breytinga á lögum félagsins, en þær verða að samþykkjast af 2/3 atkvæðisbærra fundarmanna.
Kosningar skulu vera skriflegar, ef þess er óskað. Séu atkvæðin jöfn við stjórnarkjör skal kosning endurtekin. Verði atkvæði þá enn jöfn skal hlutkesti ráða.

11. gr.

Allir skuldlausir félagsmenn 16 ára og eldri hafa kjörgengi til stjórnarstarfa, tillögurétt og málfrelsi á aðalfundi félagsins.

Atkvæðisrétt hafa hins vegar eftirtaldir aðilar:


a) Aðal- og varastjórn
b) Heiðursfélagar
c) Stjórn fulltrúaráðs
d) Stjórn deilda
e) Endurskoðendur félagsins og deilda þess
f) Fastar nefndir skipaðar af aðalstjórn
g) Þeir félagsmenn, sem eiga sæti í stjórnum sérsambanda, ÍBH og í framkvæmdastjórn ÍSÍ
h) Fulltrúar kjörnir á aðalfundum deilda

Frá frjálsíþrótta-, handknattleiks- og knattspyrnudeild: 7 fulltrúar, en frá öðrum deildum 3 fulltrúar, auk stjórnarmanna.

Enginn fulltrúi má fara með meira en 1 atkvæði á aðalfundi félagsins.

Í upphafi aðalfundarins skal afhenda kjörbréf þeirra fulltrúa sem fundinn sækja. Hafi deild ekki haldið löglegan aðalfund á réttum tíma eða skilað ársskýrslu og endurskoðuðum reikningum, missa allir fulltrúar viðkomandi deildar atkvæðisrétt á aðalfundi.

12. gr.

Aðalstjórn er heimilt að innheimta félagsgjald af þeim félagsmönnum sem ekki eru skráðir iðkendur í einhverri af íþróttadeildum félagsins.
Íþróttadeildum er heimilt að innheimta sérstakt gjald, iðkendagjald, af hverjum iðkanda innan sinna vébanda.
Heiðursformaður og heiðursfélagar eru undanþegnir félags- og iðkendagjöldum.


IX. Skipan aðalstjórnar og verkefni.

13. gr.

Aðalstjórn skipa 5 menn ásamt 3 varamönnum. Formaður er kjörinn sérstaklega á aðalfundi. Stjórnin skiptir annars þannig með sér verkum: varaformaður, ritari, gjaldkeri og meðstjórnandi. Kjörtímabil aðalstjórnar er á milli aðalfunda félagsins. Formaður boðar til funda í aðalstjórn, þegar hann telur það nauðsynlegt, eða ef 1 stjórnarmaður óskar eftir fundi. Meirihluti atkvæða ræður úrslitum mála í aðalstjórn. Stjórnarfundir eru lögmætir ef meirihluti stjórnarmanna er mættur.

14. gr.

Aðalstjórn félagsins ber að efla félagið á allan hátt og gæta hagsmuna þess í hvívetna. Hún hefur umráðarétt yfir eigum félagsins og markar stefnu þess í aðalatriðum. Aðalstjórn skipar alla trúnaðarmenn félagsins aðra en fulltrúa í sérráð ÍBH og á ársþing sérsambanda ÍSÍ. Aðalstjórn er heimilt að skipa nefndir til að vinna að ákveðnum verkefnum á hennar vegum og skulu þær leggja allar meiriháttar tillögur og ákvarðanir fyrir aðalstjórn félagsins til samþykktar.


X. Rekstrarstjórn/Framkvæmdastjórn

15. gr

Aðalstjórn skipar rekstrarstjórn sem hefur umsjón með rekstri íþróttahúsa og íþróttasvæði félagsins í heild.
Rekstrarstjórn ræður sér rekstrarstjóra/framkvæmdastjóra til þess að annast daglegan rekstur íþróttahúsa og svæðis. Rekstrarstjóri/framkvæmdastjóri má ekki sitja í aðalstjórn né stjórnum félagsdeilda. Ráðning rekstrarstjóra/framkvæmdastjóra skal vera háð samþykki aðalstjórnar.
Aðalstjórn skal setja rekstrarstjórn frekari starfsreglur og rekstrarstjórn setur rekstrarstjóra/framkvæmdastjóra frekari starfsreglur í samráði við aðalstjórn.

Aðalstjórn er einnig heimilt að ráða sér fjármálastjóra/skrifstofustjóra.
Aðalstjórn skal setja fjármálastjóra/skrifstofustjóra frekari starfsreglur.


XI. Viðurkenning, heiðursmerki.

16. gr.

Aðalstjórn veitir viðurkenningu fyrir íþróttaárangur eða störf í þágu félagsins eða íþróttahreyfingarinnar samkvæmt sérstakri reglugerð, sem samþykkt er á aðalfundi félagsins (sjá fylgiskjal 1, með lögum þessum).


XII. Fulltrúaráð.

17. gr.

Fulltrúaráð starfar innan félagsins samkvæmt reglugerð, sem samþykkt er á aðalfundi þess. Aðalstjórn skal leggja eftirtalin mál fyrir fulltrúaráðið til umsagnar:

1. Tillögu um félagsslit.
2. Sölu og kaup fasteigna.
3. Byggingaframkvæmdir.
4. Veðsetningu eigna félagsins.

Aðalstjórn gerir tillögu til aðalfundar um reglugerð, sem fulltrúaráð starfar eftir og skal þar m.a. kveða á um aðild að fulltrúaráðinu og verkefni þess.
Fulltrúaráðið getur skotið þeim málum, sem aðalstjórn leggur fyrir það, til aðalfundar eða aukaaðalfundar og er úrskurður fundarins um mál endanlegur (sjá fylgiskjal 2, með lögum þessum).


XIII. Deildir og starfssvið.

18. gr.

Hver deild innan félagsins skal hafa sérstaka stjórn, aðskilinn fjárhag og kennitölu. Hver deild skal hafa tekjur af félagsgjöldum félagsmanna deildarinnar, af ágóða íþróttamóta og öðrum fjáröflunum, sem hún tekur sér fyrir hendur í samráði við aðalstjórn félagsins (sbr. þó 25. gr.). Allar fjárhagslegar ákvarðanir deilda umfram samþykktra áætlana ber að leggja fyrir aðalstjórn til ákvörðunar. Í hverri deild skal skrá í sérstaka bók úrslit kappleikja og árangur einstaklinga eða annað markvert, sem fram fer innan deildarinnar. Í lok hvers starfsárs skal gera úrdrátt um hið markverðasta, sem síðan skal tekið inn í sameiginlega ársskýrslu félagsins.
Óheimilt er félagsdeildum að veðsetja eignir félagsins nema með samþykki aðalstjórnar.

Aðalstjórn hefur á hverjum tíma rétt til að skoða bókhald deildar. Í því skyni getur aðalstjórn tilnefnt sérstakan trúnaðarmann til slíkra verka, sem kynnir sér fjárhag og stöðu deildar og kemur með tillögur til úrbóta ef þörf krefur. Hann getur lagt til að aðalstjórn yfirtaki fjármálastjórn deildar, ef tillögum til úrbóta er ekki sinnt svo fljótt, sem verða má.
Aðalstjórn skal öll vera samþykk yfirtöku fjármála deildar.


XIV. Aðalfundir deilda.

19. gr.

Aðalfundir deilda félagsins skulu haldnir eigi síðar en 1. mars ár hvert. Allir skuldlausir félagsmenn deildarinnar, 16 ára og eldri, hafa atkvæðisrétt og kjörgengi á aðalfundi deildarinnar. Til aðalfundar deildar skal boðað með viku fyrirvara með auglýsingu opinberlega. Aðalfundur deildar er lögmætur, ef löglega er til hans boðað.


20. gr.

Dagskrá aðalfunda deilda félagsins skal vera sem hér segir:

1. Formaður deildar setur fundinn.
2. Kosinn fundarstjóri.
3. Kosinn fundarritari.
4. Fundargerð síðasta fundar lögð fram til samþykktar.
5. Formaður deildar leggur fram skýrslu deildarstjórnar um starfsemina á liðnu starfsári.
6. Gjaldkeri deildar leggur fram og útskýrir endurskoðaða reikninga deildarinnar fyrir liðið starfsár.
7. a) Kosinn formaður.
b) Kosnir 4 meðstjórnendur.
c) Kosnir 3 menn í varastjórn.
d) Kosnir 2 endurskoðendur og einn til vara.
e) Kosnir fulltrúar á aðalfund félagsins.
8. Ákveðið félagsgjald fyrir næsta starfsár.
9. Önnur mál.
10. Fundarslit.

Heimilt er að kjósa færri í stjórn deildar, enda hafi aðalstjórn félagsins samþykkt þá ráðstöfun fyrir aðalfund deildarinnar.

21. gr.

Á aðalfundi deildar ræður meirihluti atkvæða úrslitum allra mála. Kosning deildarstjórnar skal vera skrifleg, ef þess er óskað. Ef atkvæði eru jöfn, skal kosið að nýju bundinni kosningu, og fáist enn eigi úslit, ræður hlutkesti.

22. gr.

Vanræki deild að halda aðalfund á lögákveðnum tíma, skal aðalstjórn félagsins boða til fundarins og sjá um framkvæmd hans.


XV. Stjórn deildar.

23. gr.

Stjórn hverrar deildar félagsins skal skipuð þeim fjölda manna, sem segir í 20. gr. Deildarstjórn ákveður verkaskiptingu meðstjórnenda. Kjörtímabil deildarstjórnar er á milli aðalfunda viðkomandi deildar. Deildarstjórnir skulu vinna að eflingu félagsins hver á sínu sviði. Deildarstjórn skipar fulltrúa félagsins í sérráð ÍBH og á ársþing sérsambanda ÍSÍ.


XVI. Stofnun nýrra deilda.

24. gr.

Komi fram óskir meðal félagsmanna um stofnun nýrra deilda innan félagsins, skal aðalstjórn félagsins taka þær til athugunar og leggja síðan fyrir næsta aðalfund félagsins. Samþykki aðalfundurinn stofnun nýrrar deildar skal aðalstjórn félagsins sjá um undirbúning að stofnfundi, sem fara skal fram samkvæmt ákvæðum laga þessara um aðalfundi deilda.


XVII. Fundir formanna deilda og aðalstjórnar.

25. gr.

Aðalstjórn félagsins skal eigi sjaldnar en 6 sinnum á hverju ári halda fundi með formönnum deilda. Á fundum þessum skal aðalstjórn leggja fram yfirlit um helstu verkefni hennar.
Formenn deilda skulu skýra aðalstjórn frá starfsemi deildanna. Einnig skal á fundum þessum tekin ákvörðun um skiptingu kennslustyrkja, einstökum deildum veitt leyfi til fjáröflunar í nafni félagsins, ákveðin skipting ágóða af þeirri fjáröflun, sem félagið í heild stendur að.


XVIII. Spjaldskrá og reikningsár.

26. gr.

Aðalstjórn heldur félagatal. Hver íþróttadeilda félagsins heldur skrá yfir iðkendur innan sinna vébanda.

27. gr.

Reikningsár félagsins skal miðast við almanaksárið.


XIX. Úrsagnir úr félaginu, eignir, félagaskipti og slit félagsins.

28. gr.

Úrsagnir úr félaginu skal senda skriflega til viðkomandi deildarstjórnar. Félagsmaður verður að vera með öllu skuldlaus við félagið til að unnt megi vera að taka úrsögn til greina.

29. gr.

Eignir hverrar deildar, bæði lausafé og fastafjármunir eru sameign félagsins. Hætti deild starfsemi, skal stjórn deildarinnar afhenda aðalstjórn eignir hennar. Taki deildin ekki upp starfsemi á ný innan 5 ára, renna eignir hennar í aðalsjóð félagsins.
Verðlaunagripir, minjagripir og verðmæt skjöl skulu vera í vörslu aðalstjórnar. Stjórn deildar skal afhenda aðalstjórn alla verðlaunagripi jafn skjótt og til þeirra er unnið.
Til verðlaunagripa teljast ekki persónulegar viðurkenningar til íþróttamanna, nema þær sem færðar eru félaginu að gjöf frá viðkomandi íþróttamanni eða aðstandendum hans.
Eignir félagsins skulu vera vátryggðar. Aðalstjórn annast eignatryggingar félagsins.

30. gr.

Félaginu verður ekki slitið nema á aðalfundi þess og þá með samþykki 4/5 hluta atkvæðisbærra fundarmanna.


XX. Búningur og merki félagsins.

31. gr.

Búningur félagsins skal vera svartar buxur með hvítum röndum, hvítur bolur og hvítir sokkar. Telji deild nauðsynlegt að víkja frá þessu, skal hún áður leita samþykkis aðalstjórnar.
Varabúningar skulu valdir í samræmi við félagsliti ef kostur er en sé þess ekki kostur skal félagsdeild leita samþykkis aðalstjórnar. Hið sama gildir um hvers konar hlífðarfatnað sem notaður er við æfingar og keppni á vegum félagsins.

Merki félagsins er: (FH merkið)

Heimilt er að nota upprunalega FH stafi við sérstök tilefni.


XXI. Lagabreytingar.

32. gr.

Lögum þessum má ekki breyta nema á aðalfundi félagsins og þarf til þess samþykki 2/3 hluta atkvæðisbærra fundarmanna sbr. 10. gr.
Tillögur til lagabreytinga skulu tilkynntar með aðalfundarboðinu og skulu þær liggja frammi hjá aðalstjórn félagsins eigi skemur en 7 dögum fyrir aðalfund félagsins.
Tillögur til breytinga á lögum félagsins skal senda aðalstjórn eigi síðar en tveim vikum fyrir aðalfund. Heimilt er þó að taka fyrir á aðalfundi tillögur til breytinga á lögum félagsins, sem síðar koma fram, ef 2/3 hlutar atkvæðisbærra fundarmanna eru því samþykkir.

XXII. Gildistaka.

33. gr.

Lög þessi voru samþykkt á aðalfundi FH 26. febrúar 2004 og öðlast þegar gildi, jafnframt eru úr gildi felld öll eldri lög félagsins.
Fylgiskjal 1.

Reglur um heiðursformann, heiðursfélaga og viðurkenningarmerki Fimleikafélags Hafnarfjarðar sbr 16. gr laga félagsins.

1. gr.

Kjósa má heiðursformann. Hann skal kosinn á aðalfundi sbr. 8. gr., lið 10.b laga félagsins. Heiðursformaður er undanþeginn öllum kvöðum til félagsins og hefur öll réttindi innan þess svo og aðalstjórnar félagsins. Aðeins getur einn heiðursformaður verið hverju sinni. Kjósa má heiðursfélaga og skal þá afhent heiðursfélagaskírteini og stjarna FH. Framangreind heiðursveiting er æðsti heiður, er félagið veitir.

2. gr.

Aðalstjórn félagsins kýs heiðursfélaga og þurfa minnst 2/3 stjórnarmanna að vera því samþykkir. Heiðursfélagar eru undanþegnir árgjöldum, en hafa öll réttindi í félaginu.

3. gr.

Eftirfarandi heiðursmerki skulu veitt eftir sömu reglum og gilda um kosningu heiðursfélaga:

1. Stjarna FH fyrir langt og frábært starf í þágu félagsins. Aldrei mega fleiri en 10 heiðursfélagar vera handhafar stjörnunnar.
2. Gullmerki FH með lárviðarsveig fyrir frábær störf í þágu félagsins, en þó aldrei fyrr en eftir 25 ára starf.
3. Silfurmerki FH með lárviðarsveig fyrir 20 ára frábært starf eða keppni fyrir félagið.
4. Gullpeningur FH fyrir 15 ára starf eða keppni fyrir félagið.
5. Silfurpeningur FH fyrir 10 ára starf eða keppni fyrir félagið.
6. FH merki úr gulli, sem aðalstjórn leyfist að veita, ef hún telur ástæðu til.
7. Aðalstjórn er heimilt að veita “félagsmálastöng FH”, sem er áletruð viðurkenning með FH merkinu.
Félagsmálastöng FH veitist þeim, sem eru starfandi í félaginu og hlotið hafa gullmerki FH með lárviðarsveig, við merkisafmæli eða önnur tímamót viðkomandi félagsmanns.

4. gr.

Starfs- og keppnisaldur skal miðaður við 16 ára aldur.

______________________
Fylgiskjal 2.



Reglugerð um fulltrúaráð Fimleikafélags Hafnarfjarðar, sbr. 17. gr. laga félagsins.



1. gr. Verkefni fúlltrúaráðsins skal vera að vinna að eflingu íþróttastarfsemi FH, vera ráðgefandi og leiðbeinandi sérstaklega varðandi málefni á sviði um heildarstarfsemi félagsins og sérskipulags framkvæmda og fjármála.

2. gr. Meðlimir fulltrúaráðsins geta þeir félagar FH orðið, sem starfað hafa vel um langan tíma fyrir félagið, eru orðnir 35 ára, hafa hlotið samþykki 2/3 hluta löglega boðaðs fundar í fulltrúaráði og ennfremur verið samþykktir af 2/3 hluta aðalstjórnar.

3. gr. Formenn FH eru sjálfkjörnir í fulltrúaráðið.

4. gr. Fundi skal halda svo oft sem þurfa þykir, en þó aldrei færri en 4 á ári.

5. gr. Stjórn fulltrúaráðsins skal skipuð 3 mönnum, formanni, varaformanni og ritara, ásamt 3 mönnum til vara, og skal hún í hvert sinn kjörin á fyrsta fundi ráðsins eftir aðalfund FH.

6. gr. Aðalstjórn FH er skylt að leggja fyrir fulltrúaráðið til umsagnar meiriháttar áform hennar, t.d. félagsslit og þau málefni, sem geta haft verulega fjárhagslega þýðingu, svo sem byggingaframkvæmdir, kaup, sölu og veðsetningar á fasteignum félagsins.

7. gr. Fulltrúaráðið getur skotið þeim málum, sem aðalstjórn leggur fyrir það, til aðalfundar eða aukaaðalfundar og er úrskurður þess fundar um mál félagsins endanlegur.

8. gr. Ef fulltrúi mætir ekki eða boðar forföll í heilt ár, skal stjórn ráðsins kynna sér fjarveruástæður hans. Ef fulltrúaráðið telur ástæðu til, getur það veitt honum lausn úr ráðinu, þó aðeins að fengnu samþykki aðalstjórnar FH.

9. gr. Breytingar á reglugerð þessari þurfa samþykki 2/3 hluta á aðalfundi félafsins.

Framkvæmdir í Kaplakrika

Eins og flestir iðkendur, foreldrar og almennir FH-ingar hafa tekið eftir er nóg um að vera á Kaplakrikasvæðinu þessa dagana. Áður en langt um líður komum við til með að eiga eitt allra glæsilegasta íþróttasvæði landsins. En á meðan framkvæmdum stendur þarf að sýna þolinmæði og fara varlega um svæðið. Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar um framkvæmdina og aðgengi á svæðinu.

Myndasafn

Könnun

Ætlar þú að mæta á æfingar hjá Hlaupahóp FH